Fotbolti.net
15.06.07 - 11:08
Magnús Már Einarsson

Kazim-Richards til Fenerbahce (Staðfest)

Kazim-Richards til Fenerbahce (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Tyrknesku meistararnir í Fenerbahce hafa náð samningum um að fá framherjann Colin Kazim-Richards frá Sheffield United.
Þessi tvítugi leikmaður er fæddur á Englandi en hann á tyrkneska móður og lék með tyrkneska landsliðinu gegn Brasilíu fyrr í mánuðinum.

Í kjölfarið sýndu mörg tyrknesk lið þessi fyrrum leikmanni Brighton áhuga en hann mun fara til Fenerbahce sem mun borga 1,2 milljónir punda fyrir leikmanninn sem kostaði félagið 150 þúsund pund fyrir ári síðan.

Kazim-Richards lék 29 leiki með Sheffield United en skoraði einungis eitt mark í þeim.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.