Fotbolti.net
15.06.07 - 20:49
Magnús Már Einarsson

Annar Úgandamaður til ÍBV (Staðfest)

Andrew Mwesigwa.

Andrew Mwesigwa.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Anton Ari Einarsson

ÍBV úr fyrstu deild karla hefur fengið tvítugan framherja frá Úganda að nafni Augustine Nsumba og hefur hann fengið leikheimild með liðinu.
Nsumba er annar Úgandamaðurinn í herbúðum ÍBV en varnarmaðurinn Andrew Mwesigwa kom til félagsins fyrir síðastliðið tímabil.

Andrew lék fimmtán leiki í Landsbankadeildinni síðastliðið sumar og hann hefur einnig leikið með ÍBV í upphafi fyrstu deildarinnar í ár.

Eyjamenn eru í fimmta sæti fyrstu deildarinnar með sex stig eftir fjóra leiki en liðið mætir KA í Eyjum klukkan 14:00 á morgun.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.