ÍBV 0 - 2 Breiðablik
0-1 Sigurður Arnar Magnússon ('20 , sjálfsmark)
0-2 Tobias Bendix Thomsen ('76 )
Lestu um leikinn
0-1 Sigurður Arnar Magnússon ('20 , sjálfsmark)
0-2 Tobias Bendix Thomsen ('76 )
Lestu um leikinn
Breiðablik er komið á toppinn í bili að minnsta kosti eftir sigur á ÍBV í Eyjum í dag.
Viktor Karl Einarsson var nálægt því að ná forystunni fyrir Blika eftir stundafjórðung. Hann slapp einn í gegn og vippaði yfir Marcel í marki ÍBV en boltinn fór í slánna.
Stuttu síðar náði Blikar forystunni. Ágúst Orri Þorsteinsson átti fyrirgjöf og boltinn fór af Sigurði Arnari Magnússyni og þaðan fór boltinn í netið.
Eyjamenn fengu gott tækifæri til að jafna snemma í seinni hálfleik en Arnór Ingi Kristinsson átti skot yfir markið.
Þegar tæpur stundafjórðungur var til loka venjulegs leiktíma innsiglaði Tobias Thomsen sigur Blika. Eins og fyrr segir er Breiðablik komið á toppinn með 22 stig eftir 11 umferðir. ÍBV er sem stendur í 6. sæti með 14 stig.
Stöðutaflan
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | |
Athugasemdir



