Fotbolti.net
15.06.25 - 22:22
Gunnar Bjartur Huginsson

Heimir: Þá fer þetta að verða eins og umræðan var árið 2022

Auglýsing
Heimir Guðjónsson var ekki nógu sáttur með frammistöðu sinna manna.

Heimir Guðjónsson var ekki nógu sáttur með frammistöðu sinna manna.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Við byrjuðum leikinn ágætlega, en eins og oft í sumar réttum við leikinn upp í hendurnar á Fram. Við gáfum boltann á slæmum stað og fengum á okkur mark og eftir það var bara eitt lið á vellinum í fyrri hálfleik og það var Fram. Varnarlega vorum við allt of langt frá mönnunum okkar, töpuðum öllum 50/50 einvígum og 1 á 1 einvígum. Við vorum heppnir að sleppa með 1-0 inn í hálfleikinn," sagði Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, eftir 2-0 tap gegn Fram á Lambhagavellinum í kvöld.

Lestu um leikinn: Fram 2 - 0 FH

Það er alltaf áhyggjuefni að við skorum ekki en aðaláhyggjuefnið er það að við erum búnir að spila sjö útileiki og sex af þeim á gervigrasi og búnir að tapa þeim öllum. Ég held örugglega öllum bara tiltölulega sannfærandi og þá fer þetta að verða eins og umræðan var 2022, þar sem að FH-liðið gat ekki spilað á gervigrasi, af því að við erum á grasi," sagði Heimir beittur.

Vuk Oskar Dimitrijevic skoraði í kvöld gegn sínum gömlu félögum í FH og er kominn með sex mörk í ellefu leikjum. 

„Nei alls ekki. Ég er bara ánægður að Vuk gangi vel," sagði Heimir að lokum aðspurður hvort hann saknaði Vuk. 

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.