Fotbolti.net
15.06.25 - 15:34
Brynjar Ingi Erluson

Nmecha til Leeds (Staðfest)

Nmecha til Leeds (Staðfest)
Canon

Mynd: Leeds

Þýski framherjinn Lukas Nmecha er genginn í raðir Leeds United á frjálsri sölu frá Wolfsburg.
Nmecha er 26 ára gamall og skrifar undir tveggja ára samning við Leeds.

Samningur hans við Wolfsburg rennur út um mánaðamótin og verður hann því formlega leikmaður Leeds þá.

Þjóðverjinn er fæddur í Þýskalandi en flutti ungur að árum til Englands og spilaði með akademíu Manchester City. Hann náði að leika þrjá leiki með aðalliðinu áður en hann gekk í raðir Wolfsburg árið 2021.

Það sumarið vann hann EM U21 árs landsliða með Þjóðverjum og endaði markahæstur á mótinu, en nokkrum mánuðum lék hann fyrstu A-landsleiki sína sem eru nú orðnir sjö talsins.

Nmecha er fyrsti leikmaðurinn sem Leeds sækir í sumar og væntanlega einn af mörgum, en liðið vann ensku B-deildina á síðustu leiktíð og er komið aftur í úrvalsdeildina eftir tveggja ára fjarveru.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.