Fotbolti.net
15.06.25 - 22:42
Gunnar Bjartur Huginsson

Rúnar: Hefur fengið að blómstra í þessu hlutverki

Auglýsing
Rúnar Kristinsson var að vonum sáttur við sína menn.

Rúnar Kristinsson var að vonum sáttur við sína menn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, var ánægður með 2-0 sigur á FH á heimavelli í kvöld eftir tvo tapleiki í röð.

Ég er ofboðslega sáttur. Það er frábært að vinna FH og þetta er hörkulið sem er erfitt að spila við. Mér fannst við gera frábærlega í að verja markið okkar í dag, þrátt fyrir að þeir fengu fulloft að koma boltanum inn í. Við vorum að reyna forðast það en eftir 1-0 féllum við fullmikið til baka," sagði Rúnar.

Lestu um leikinn: Fram 2 - 0 FH

Vuk Oskar Dimitrijevic, leikmaður Fram, hefur heldur betur fest sig í sessi í Framtreyjunni og er kominn með sex mörk í ellefu leikjum. 

Við erum að gefa honum trú, sjálfstraust og leyfa honum að spila eins og hann vill spila en með einhverjum takmörkunum. Hann hefur bara fengið að blómstra í þessu hlutverki sínu og það hentar okkur vel að hafa hann frammi í tveggja framherja kerfinu okkar."

Fred Saraiva, lykilleikmaður Fram, hefur verið að glíma við meiðsli og kom í fyrsta skiptið inn á síðan 10. maí í kvöld.

Algjörlega geggjað að fá hann aftur. Maður bara sér róna sem kemur yfir allt liðið þegar hann kemur inn á. Hann er bara það öruggur á boltanum og Simon er öruggur á boltanum. Að hafa tvo svona gaura á miðsvæðinu þegar við þurfum að passa boltann betur, sér maður stóran mun á liðinu."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.