Fotbolti.net
15.06.25 - 10:24
Brynjar Ingi Erluson

Tottenham kaupir Mathys Tel frá Bayern (Staðfest)

Tottenham kaupir Mathys Tel frá Bayern (Staðfest)
Canon

Mynd: Tottenham Hotspur

Tottenham Hotspur hefur fest kaup á franska sóknarmanninum Mathys Tel frá Bayern München fyrir 30 milljónir punda.
Tel, sem er tvítugur, kom til Tottenham á láni frá Bayern í janúarglugganum.

Hann skoraði tvö deildarmörk og spilaði rúmar 200 mínútur er liðið vann Evrópudeildina.

Tottenham var ánægt með frammistöðu hans í seinni hlutanum og fór strax í viðræður við Bayern eftir tímabilið.

Samkomulag náðist í gær um kaupverð en Tottenham greiðir 30 milljónir punda og skrifaði hann undir sex ára samning við Lundúnafélagið.

Tel er þessa stundina með U21 árs landsliði Frakklands á Evrópumótinu í Slóvakíu. Frakkar eru með fjögur stig eftir tvo leiki og er Tel kominn með eitt mark.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.