Vuk: Er kannski nær markinu og með meira sjálfstraust

Vuk hefur farið af stað með krafti í Bestu deildinni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vuk hefur farið af stað með krafti í Bestu deildinni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Vuk Oskar Dimitrijevic er kominn með sex mörk í ellefu leikjum í Bestu deild karla í ár og hefur verið funheitur undanfarið en hann er með fjögur mörk í síðustu fjórum leikjum. Jafnframt er hann að festa sig í fyrsta skiptið almennilega í sessi í efstu deild.
„Mér finnst kannski asnalegt að fara að segja eitthvað hvað breyttist eða ekki. En þú veist, ég er kannski nær markinu og með meira sjálfstraust."
Vuk Oskar spilaði fyrir FH í fjögur ár og skoraði í kvöld mark gegn sínum gömlu félögum. Hann fagnaði ekki markinu.
„Ég er ekkert mikið að pæla í því. Þetta er bara eins og hver annar leikur finnst mér, þannig að ég reyni bara að gera mitt besta og mér fannst ég spila vel í dag," sagði Vuk Oskar Dimitrijevic að lokum.
Viðtalið má nálgast í heild í spilaranum að ofan.




