HM: Isak og Gyökeres skoruðu í stórsigri Svía

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Svíþjóð 5 - 1 Túnis
1-0 Yasin Ayari ('7 )
2-0 Alexander Isak ('30 )
2-1 Omar Rekik ('43 )
3-1 Viktor Gyökeres ('59 )
4-1 Mattias Svanberg ('84 )
5-1 Yasin Ayari ('90 )
1-0 Yasin Ayari ('7 )
2-0 Alexander Isak ('30 )
2-1 Omar Rekik ('43 )
3-1 Viktor Gyökeres ('59 )
4-1 Mattias Svanberg ('84 )
5-1 Yasin Ayari ('90 )
Svíþjóð átti ekki í nokkrum vandræðum með Túnis á HM í nótt og vann 5-1 sigur.
Alexander Isak skoraði í sínum fyrsta leik á heimsmeistaramóti eftir gott hlaup frá vinstri en þessi sóknarmaður Liverpool var mikið á meiðslalistanum á nýliðnu tímabili.
Isak tvöfaldaði forystu Svía eftir að Yasin Ayari hafði komið þeim yfir snemma leiks. Ayari fagnaði ekki markinu af virðingu við Túnis en faðir hans fæddist í landinu.
Túnis minnkaði muninn fyrir hálfleik þegar varnarmaðurinn Omar Rekik skoraði með skalla. En Svíar svöruðu með þremur mörkum í seinni hálfleik.
Viktor Gyökeres skoraði áður en Mattias Svanberg skoraði fjórða mark Svía. Svanberg skoraði aðeins tólf sekúndum eftir að hafa komið inn sem varamaður og er það met í sögu HM.
Ayari skoraði síðasta mark leiksins, hans annað mark í leiknum, og Graham Potter og lærisveinar fara frábærlega af stað á HM.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!