15.07.06 - 16:27
Hafliði Breiðfjörð
Landsliðsmarkvörður Argentínu til Getafe (Staðfest)

Roberto Abbondanzieri í marki Argentínumanna á Heimsmeistaramótinu í Þýskalandi í síðasta mánuði.

Mynd: Getty Images

Spænska félagið Getafe hefur gengið frá kaupum á markverðinum Roberto Abbondanzieri frá Boca Juniors í Argentínu. Abbondanzieri sem er landsliðsmarkvörður Argentínu skrifaði undir þriggja ára samning við félagið.
Angel Torres forseti Getafe lagði fram tilboð á meðan Heimsmeistaramótinu stóð en Boca Juniors höfnuðu tilboðinu og Abbondanzieri bað um meiri tíma. Viðræður hafa staðið undanfarna daga og nú er búið að ganga frá öllu.
,,Það er kominn tími fyrir mig að fara til Evrópu," sagði Abbondanzieri við fjölmiðla í heimalandinu. ,,Ég ræddi við liðsfélaga mína á Heimsmeistaramótinu og þeir ráðlögðu mér allir að fara í spænsku deildina. Ég vil sýna að ég er ekki bara leikmaður fyrir argentísku deildina, og Getafe er rétta liðið til að sanna það hjá."
Getafe hafði áður keypt Úrúgvæann Juan Albin frá Nacional og gert við hann fimm ára samning en hann er 19 ára gamall og getur spilað á vinstri kanti eða sem framherji. Hann skoraði 14 mörk fyrir meistarana í Úrúgvæ á síðustu leiktíð.