15.07.06 - 19:23
Þórður Már Sigfússon
Bruggink til Hannover (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Hannover 96, lið Gunnars Heiðar Þorvaldssonar hefur fest kaup á hollenska landsliðsmanninum Arnold Bruggink frá SC Heerenveen.
Bruggink sem verður 29 ára í næstu viku gerði þriggja ára samning við Bundesliga liðið. Hann byrjaði feril sinn sem sóknarmaður hjá hollenska liðinu FC Twente áður en hann gerði garðinn frægan hjá PSV Eindhoven.
Bruggink reyndi fyrir sér á Spáni árið 2003 með Mallorca en náði sér ekki á strik og snéri aftir til Hollands árið eftir og gekk til liðs við SC Heerenveen.
Ekki er talið að hann muni veita Gunnari beina samkeppni um sæti í liðinu þar sem Peter Neurerer stjóri Hannover sér Bruggink fyrir sér sem framliggjandi miðjumann.