Fotbolti.net
15.07.26 - 17:07
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Jón Daði harðákveðinn í að vera áfram á Selfossi: Hann réttilega rak mig bara af æfingu

Jón Daði harðákveðinn í að vera áfram á Selfossi: Hann réttilega rak mig bara af æfingu
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrrum landsliðsmaðurinn Jón Daði Böðvarsson ætlar sér að vera áfram á Selfossi og segir í viðtali við ChessAfterDark að hann myndi ekki fara í Víking ef kallið kæmi frá Íslandsmeisturunum. Jón Daði var orðaður við félagið eftir að Elías Már Ómarsson sleit krossband í síðustu viku.

Jón Daði er í ítarlegu viðtali þar sem hann ræðir um ferilinn til þessa. Hann fer m.a. yfir það af hverju hann var rekinn af æfingu fyrr í sumar. Í kjölfarið var hann ekki í leikmannahópi Selfoss í leik í 2. deild.
Furða sig á innkomu Jóns Daða - Fékk fyrirliðabandið og neitaði að mæta í viðtal
TENGT EFNI

Furða sig á innkomu Jóns Daða - Fékk fyrirliðabandið og neitaði að mæta í viðtal

„Þetta (kom út) aðeins dramatískara en það í raun og veru var. Allir aðilar ræddu bara saman og síðan var bara ákveðið að ég yrði áfram, ég ætlaði ekkert að gefast upp á þessu. Ég vil halda mínu áfram og reyna koma klúbbnum á hærra plan."

Eftir fyrsta leikinn sem hann spilaði eftir að hafa verið utan hóps óskaði fréttamaður Fótbolta.net eftir að fá Jón Daða í viðtal en hann gaf ekki kost á sér.

„Það voru eiginlega mistök af minni hálfu að fara ekki í viðtal, það var aðallega af því ég nennti ekki að hafa meiri athygli á mér með þetta. En eftir á að hyggja hefði ég bara átt að fara í þetta viðtal því það kom svo bara frétt um að ég hefði neitað að fara í viðtal. Það kom út eins og ég væri í einhverri fýlu, sem var aldrei málið," segir Jón Daði í viðtalinu og hélt áfram:

„Það var fjallað um að það hefði verið eitthvað ósætti milli míns og Óla (Stefáns Flóventssonar, þjálfara Selfoss) sem er mesta bull sem ég hef heyrt. Við vorum allan tímann í góðu sambandi."

„Ég var rekinn af æfingu vegna þess að ég er með stuttan kveikiþráð og keppnisskap. Ég held að mjög margir hafa lent í því. Ég er ástríðufullur og vil alltaf vinna, hvort sem það er í leik eða á æfingu. Ég er með skap, þótt það líti ekki alltaf þannig út, en ég er tapsár og hann réttilega rak mig bara af æfingu. Svo er það bara áfram gakk, menn bara ræða hlutina og það kemur nýr dagur,"
segir Jón Daði sem er samningsbundinn Selfoss út næsta tímabil.

Selfoss er í toppbaráttu í 2. deild og mun í byrjun næsta mánaðar taka á móti Ými í 8-liða úrslitum Gatorade bikars Fótbolta.net.

Viðtalið má nálgast hér að neðan.

Óli Stefán og Jón Daði.

Óli Stefán og Jón Daði.

Canon

Mynd: Samsett mynd

Jón Daði harðákveðinn í að vera áfram á Selfossi: Hann réttilega rak mig bara af æfingu
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jón Daði harðákveðinn í að vera áfram á Selfossi: Hann réttilega rak mig bara af æfingu
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Haukar12+1726
2Dalvík/Reynir12+320
3Selfoss12+220
4Kári12+918
5Fjölnir12+718
6Kormákur/Hvöt12+1217
7Víkingur Ó.12-715
8KFA12+514
9Þróttur V.12-413
10Hvíti riddarinn12-413
11KFG12-2012
12Magni12-2011
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.