Fotbolti.net
15.08.07 - 15:14
Hörður Snævar Jónsson

Liverpool fær 17 ára markvörð (Staðfest)

Liverpool fær 17 ára markvörð (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Liverpool hafa fengið 17 ára gamlan Ungverskan markvörð að nafni Peter Gulacsi. Hann hefur verið að æfa með liðinu undanfarna tíu daga og hefur Liverpool ákveðið að semja við hann.
,,Ég vaknaði með þá hugsun á hverjum degi að brátt ætti ég möguleika á því að verða leikmaður Liverpool," sagði Gulacsi við Sky.

,,Umboðsmaður minn sagði mér frá áhuga frá liðum í Evrópu og í úrvaldsdeildinni sem höfðu verið að fylgjast með mér en vilji minn var að fara til Liverpool"

,,Í mars sendi Pepe Reina mér hanska áritaði og ég ber virðingu fyrir því, á þeim tíma var þetta bara draumur minn að ég myndi æfa með honum,"
sagði Gulacsi að lokum.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.