Tottenham horfir í kringum sig - Man City ætlar að bjóða Foden nýjan samning - Schade á förum?
   fös 15. ágúst 2025 15:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sonur fyrrum landsliðskonu í Leikni (Staðfest)
Lengjudeildin
Mynd: Aðsend
Á gluggadeginum fékk Leiknir Jónatan Ari Bragason í sínar raðir. Hann fékk félagaskipti frá Danmörku.

Hann var skráður í lið AB Tårnby sem spilar í neðri deildum Danmerkur. Hann hafði verið á reynslu hjá Jóa Kalla og félögum í AB Kaupmannahöfn síðasta sumar, en fékk ekki samning.

Hann er stór og stæðilegur miðvörður sem er fæddur árið 2006. Hann er fluttur er til Íslands og er mættur í Leikni. Hann er sonur fyrrum landsliðskonunnar Erlu Hendriksdóttur sem lék á sínum tíma 55 A-landsleiki og skoraði í þeim fjögur mörk.

Jónatan er kominn með leikheimild og gæti verið í hóp gegn Völsungi á sunnudag.

Hann rataði í danska fjölmiðla árið 2021 þegar hann var á yngri flokka æfingu og hundur réðst á hann og beit hann í lærið.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner