15.09.05 - 06:34
Magnús Már Einarsson
Les Ferdinand til Watford (Staðfest)




Les Ferdinand hefur gengið til liðs við enska 1.deildarliðið Watford á samning sem er ótímabundinn. Ferdinand sagðist vera hættur eftir að hann fór frá Reading í vor en hann hefur æft með Watford og nú fengið leikmannanúmer hjá liðinu.
Adrian Boothroyd stjóri Watford sagði við heimasíðu liðsins: ,,Les hefur æft með okkur síðan á undirbúningstímabilinu og hefur nú fengið leikmannanúmer og samið á ótímabundnum samningi."
Watford hefur einnig fengið Carl Fletcher að láni frá West Ham.
Watford hefur einnig fengið Carl Fletcher að láni frá West Ham.
