15.10.07 - 10:44
Magnús Már Einarsson
Sheffield United fær Bardsley á láni frá Man Utd (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Sheffield United hefur fengið varnarmanninn Phil Bardsley á láni frá Manchester United en frá þessu greinir BBC útvarpið í Sheffield.
Bardsley sem er 22 ára verður í þrjá mánuði á láni hjá Sheffield United til að byrja með hann var á láni hjá Aston Villa og Glasgow Rangers á síðustu leiktíð.
Bryan Robson stjóri Sheffield United vonast einnig til að ná að krækja í miðjumann á næstu tveimur sólarhringum.
Robson missti af öðrum ungum leikmanni United, hinum írska Darron Gibson en hann fór til Wolves á láni.

Heimild: BBC