Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
banner
   fim 15. október 2020 12:30
Magnús Már Einarsson
Guendouzi með kórónuveiruna
Mynd: Getty Images
Franski miðjumaðurinn Matteo Guendouzi hefur greinst með kórónuveiruna.

Guendouzi fór frá Arsenal til Hertha Berlin í Þýskalandi á láni á dögunum.

Guendouzi var í verkefni með U21 landsliði Frakka en hann hefur nú greinst með kórónuveiruna og mun fara í tíu daga einangrun í Þýskalandi.

Hinn 21 árs gamli Guendouzi er einkennalaus og við góða heilsu.

Guendouzi átti að spila sinn fyrsta leik með Hertha Berlin gegn Stuttgart á laugardag en nú er ljós að bið verður á því.
Athugasemdir
banner
banner
banner