Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 15. október 2020 20:35
Victor Pálsson
Þýski bikarinn: Choupo-Moting með tvö í sigri Bayern
Mynd: Getty
Duren 0 - 3 Bayern Munchen
0-1 Maxim Choupo-Moting('24)
0-2 Thomas Muller('36, víti)
0-3 Maxim Choupo-Moring('75)

Bayern Munchen er komið áfram í þýska bikarnum eftir leik við Duren í kvöld en leikið var á Allianz Arena.

Duren er áhugamannalið í fimmtu efstu deild Þýskalands og var verkefnið því alltaf að fara verða ómögulegt.

Bayern komst sannfærandi áfram með 3-0 sigri þar sem Maxim Choupo-Moting skoraði tvö fyrir liðið.

Choupo-Moting var að spila sinn fyrsta leik fyrir Bayern en hann kom frá Paris Saint-Germain í sumar.

Bayern tefldi fram mjög sterku liði miðað við andstæðing en þar mátti sjá leikmenn eins og Douglas Coste, Alphonso Davies og Jerome Boateng.

Athugasemdir
banner