15.12.05 - 13:06
Magnús Már Einarsson
Hans Mathiesen áfram hjá Fram (Staðfest)
Verður í Safamýrinni næstu þrjú árin


Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon


Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Danski miðjumaðurinn knái Hans Mathiesen verður áfram hjá liðinu en hann hefur gert samning til þriggja ára. Hans mun koma hingað til lands í janúar og hefja æfingar með Fram en hann var eftirsóttur í haust og vildu bæði Fylkir og ÍBV fá hann eins og við greindum frá.
Hans sem skoraði eitt mark í sautján leikjum í Landsbankadeildinni í sumar ákvað hinsvegar að vera áfram hjá Fram og eru þetta góð tíðindi fyrir liðið sem leikur í fyrstu deild á næstu leiktíð.
Þá mun framherjinn Helgi Sigurðsson koma hingað til lands á laugardaginn og hefja æfingar með Fram en hann ákvað sem kunnugt er að ganga til liðs við félagið í haust.
Þá mun framherjinn Helgi Sigurðsson koma hingað til lands á laugardaginn og hefja æfingar með Fram en hann ákvað sem kunnugt er að ganga til liðs við félagið í haust.
Heimild: Heimasíða Fram
