15.12.07 - 18:52
Andri Fannar Stefánsson
Capello: Mér hefur alltaf líkað vel við alvöru áskoranir

Klár í verkefnið
Capello segist vera klár í þetta erfiða verkefni.

Mynd: Getty Images

Skjalfest
Tilkynningin frá enska knattspyrnusambandinu um ráðningu Capello.
(Smellið á myndina til að sjá hana stærri)

Fabio Capello hefur nú talað í fyrsta skipti opinberlega eftir að hafa verið ráðinn arftaki Steve McClaren sem enskur landsliðsþjálfari en Ítalinn segist ætla að gera starfið að hápunkti glæsilegs ferils síns.
Miklar vangaveltur áttu sér stað um næsta landsliðsþjálfara og voru stórkostlega skiptar skoðanir meðal helstu manna innan boltans um hvort enska sambandið ætti að ráða erlendan þjálfara eða heimamann en svo fór að Capello var ráðinn að lokum.
Capello sem hefur unnið sjö deildartitla og Meistaradeildaritil sem þjálfari samþykkti fjögurra og hálfs árs samning við enska knattspyrnusambandið í gærdag.
Arftaki Steve McClaren sem var rekinn í síðasta mánuði eftir að hafa mistekist að koma liðinu á EM 2008 mun hefja störf snemma í janúar og segist hann vera reiðubúinn í áskorunina.
,,Mér hefur alltaf líkað við áskoranir," sagði Capello. ,,Það er gott að fá eitthvað nýtt og öðruvísi og þetta er sú erfiðasta, langvinn áskorun þar sem maður þarf að safna meiri upplýsingum og læra meira."
Capello verður kynntur af enska knattspyrnusambandinu á mánudaginn og hann ítrekaði að hann væri tilbúinn í að afreka mikla hluti með landsliðinu.
,,Ég og mínir menn ætlum klárlega að gera mjög góða hluti," sagði Capello sem hefur valið fjóra ítalska félaga sína til að vinna með sér sem hluta af þjálfarateyminu bakvið tjöldin.
,,Þetta er starf sem ég vil klára og ég vona, ef ég fæ úrslitin, að þetta verði hápunktur ferils míns - það væri fallegt en einnig mjög erfitt," bætti hann svo við en ýjaði svo að því að þetta gæti orðið síðasta starf hans í boltanum.
,,Eftir svo langan tíma í fótboltanum væri frábært að þetta myndi enda vel."
Sjá einnig:
Fabio Capello ráðinn þjálfari enska landsliðsins (Staðfest)

Heimild: Sky