16.02.06 - 07:57
Magnús Már Einarsson
Árni og Sigmundur í Þór (Staðfest)

Árni Kristinn Skaftason.

Mynd: leiftur.is

Árni Kristinn Skaftason.

Mynd: leiftur.is
Þórsarar hafa fengið liðsstyrk fyrir fyrstu deildina næsta sumar en þeir hafa fengið markvörðinn Árna Kristinn Skaftason frá Leiftri/Dalvík og varnarmanninn Sigmund Birgi Skúlason frá Tindastól.
Árni sem er 26 ára lék sautján leiki með Leiftri/Dalvík í annarri deildinni síðastliðið sumar en hann hefur einnig leikið með KA og er honum nú ætlað að keppast við Gunnar Líndal um markvarðarstöðuna hjá Þór.
Sigmundur er 23 og hann lék einnig sautján leiki í annarri deildinni síðastliðið sumar en með Tindastól. Báðir hafa leikmennirnir verið að leika með Þór í Powerademótinu og munu þeir styrkja leikmannahóp liðsins fyrir komandi átök í sumar.