16.02.07 - 18:19
Magnús Már Einarsson
Yngvi í ÍBV (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Anton Ari Einarsson


Mynd: Fótbolti.net - Anton Ari Einarsson
Miðjumaðurinn Yngvi Magnús Borgþórsson hefur gengið til liðs við ÍBV en hann hefur verið einn af sterkustu leikmönnum KFS í þriðju deildinni undanfarin ár.
Yngvi sem er 31 árs hefur verið drjúgur í markaskorun fyrir KFS og en síðastliðið sumar gerði hann sjö mörk í ellefu leikjum í þriðju deildinni og árið áður voru mörkin tíu í jafnmörgum leikjum.
Yngvi er þegar kominn með leikheimild með ÍBV og getur hann því leikið með liðinu gegn Breiðablik í Lengjubikarnum á sunnudaginn.
Yngvi er þegar kominn með leikheimild með ÍBV og getur hann því leikið með liðinu gegn Breiðablik í Lengjubikarnum á sunnudaginn.
