16.02.07 - 19:33
Magnús Már Einarsson
Albert Högni í Grindavík (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Albert Högni Arason sem var fyrirliði Hauka á síðustu leiktíð hefur gengið til liðs við Grindvíkinga en við greindum frá því á dögunum að samkvæmt okkar heimildum myndi hann fara í Grindavík eða Þór.
Albert sem er 29 ára gamall varnarmaður skoraði eitt mark í átján leikjum með Haukum á síðustu leiktíð en markið gerði hann í lokaumferð fyrstu deildarinnar, gegn Víkingi Ólafsvík.
Hann lék með Aftureldingu frá 2003 til 2005 en þá gekk hann til liðs við Hauka. Áður lék hann með Leiftri í efstu deild og síðar Leiftri/Dalvík í fyrstu deildinni.
Hann hefur þegar fengið leikheimild með Grindavík og er því löglegur með liðinu í Lengjubikarnum gegn Íslandsmeisturum FH á morgun.