16.02.07 - 18:04
Magnús Már Einarsson
Calum Þór Bett í HK (Staðfest)

Úr leik HK og Víkings Ólafsvík síðastliðið sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Úr leik HK og Víkings Ólafsvík síðastliðið sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Nýliðar HK í Landsbankadeild karla hafa fengið Calum Þór Bett til liðs við sig en eins og við greindum frá í gær hefur liðið einnig fengið Rúnar Pál Sigmundsson og Þorlák Hilmarsson til liðs við sig.
Calum er 25 ára og spilað síðast með Stjörnunni í fyrstu deildinni árið 2004 en hann hefur æft með HK frá því undir lok síðasta sumars.
Calum sem er bróðir Baldurs Bett, miðjumanns Vals, hefur þegar fengið leikheimild með HK og getur hann því leikið með liðinu gegn KA í Lengjubikarnum á sunnudaginn.
Calum sem er bróðir Baldurs Bett, miðjumanns Vals, hefur þegar fengið leikheimild með HK og getur hann því leikið með liðinu gegn KA í Lengjubikarnum á sunnudaginn.
