16.02.08 - 19:53
Magnús Már Einarsson
Árni Einar í Hvöt (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Hvöt úr annarri deild hefur fengið mjðjumanninn Árna Einar Adolfsson frá KS/Leiftri. Kristján Óli SIgurðsson þjálfari Hvatar staðfesti þetta við Fótbolta.net í dag.
Árni Einar, sem er tvítugur, skoraði fimm mörk í sautján leikjum þegar að KS/Leiftur komst upp úr annarri deildinni í sumar.
Hann hefur áður verið á mála hjá Hvöt því hann lék með liðinu í þriðju deildinni árið 2005. Árið 2006 var hann síðan á mála hjá Tindastól.
Árni er fyrsti leikmaðurinn sem Hvöt fær til liðs við sig í vetur en að sögn Kristjáns Óla gætu fleiri leikmenn gengið til liðs við félagið á næstunni.
Hvöt leikur í annarri deild í sumar en félagið lék síðast þar árið 1987.