Guðlaugur Victor Pálsson og hans menn í Darmstadt unnu Sandhausen 1-0 í þýsku B-deildinni í dag. Darmstadt fer upp í níunda sætið með sigrinum.
Guðlaugur Victor er afar mikilvægur í liði Darmstadt en hann lék allan leikinn í dag og nældi sér í gult spjald.
Hann hefur átt frábært tímabil í Þýskalandi og hefur verið áskrifandi í liði vikunnar.
Rúrik Gíslason, sem spilar með Sandhausen, byrjaði á bekknum í dag en kom inná á 77. mínútu.
Sandhausen er í 11. sæti með 27 stig.
Eggert Gunnþór Jónsson var þá í byrjunarliði SonderjyskE í dönsku úrvalsdeildinni er lið hans vann 3-1 sigur á Hobro. Hann fór af velli á 73. mínútu.
Athugasemdir