Heimild: Íslendingavaktin
Aron Sigurðarson opnaði markareikning sinn hjá belgíska B-deildarliðinu Union St. Gilloise í 3-3 jafntefli gegn Roeselare í gær.
Aron var keyptur til St. Gilloise frá Start eftir tímabilið í Noregi en hann skoraði afar laglegt mark gegn Roeselare í gær.
Hann gerði þriðja mark liðsins í 3-3 jafntefli en hann fíflaði þar varnarmenn liðsins áður en hann skaut boltanum í vinstra hornið.
Hægt er að sjá markið hjá honum hér fyrir neðan.
Athugasemdir