12.11.26 - 15:37
Magnús Atlason
Freyr: Áfram gakk
Auglýsing

Freyr Sigurðsson.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Freyr Sigurðsson.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Ísland gerði grátlegt 1-1 jafntefli í snjónum gegn Grikklandi á Pepsi-vellinum í Laugardal þar sem bæði mörkin komu undir lok leiks. Fótbolti.net náði tali af Frey Sigurðssyni eftir leik.
Lestu um leikinn: Ísland U21 1 - 1 Grikkland U21
"Við erum svekktir að hafa ekki unnið þennan leik. Við vorum bara miklu betri og með miklu fleiri færi og svo bara óheppnir að skora ekki fleiri mörk. Síðan skora þeir eitthvað skítamark. En það er bara áfram gakk."
Freyr kom sterkur inn í byrjunarliðið í dag. Hvernig fannst honum sín eigin frammistaða?
"Allt í lagi miðað við aðstæður, það er ekki hægt að spila í þessum snjó en þetta var bara gaman."
Freyr var með blóðnasir fyrir viðtalið. "Hvað kom fyrir þig undir lokin?"
"Ég fékk olnbogaskot í nebbann, ekki þægilegt." Sagði Freyr léttur.
Sjáðu viðtalið í heild sinni efst í fréttinni.