Heimild: Mín Skoðun
Jason Daði Svanþórsson var orðaður við heimkomu í hlaðvarpsþættinum Mín skoðun með Valtýri Birni. Þar segir Valtýr að orðrómar væru um að Jason væri opinn fyrir því að snúa aftur heim og ef það raungerist kæmi einungis KR til greina.
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, sótti Jason til Breiðabliks frá Aftureldingu árið 2021 og varð hann fljótt lykilmaður liðsins. Hann var seldur til Grimsby frá Breiðabliki sumarið 2024.
Kristinn Kjærnested, fyrrverandi formaður KR, var gestur í þættinum og var spurður út í möguleikann á að Jason komi í KR.

„Sé það rétt, veltir maður því fyrir sér hvort að menn ætla ekki að benda vandamálið. Það liggur í vörninni. Ég hef enga tölu á því hvað það eru margir kantmenn í KR: Amin, Aron, Galdur, Luke Rae og svo framvegis.
Jason Daði er frábær leikmaður, ekki misskilja mig, en stóra spurningin er sú - Hvað þarf KR að laga frá síðustu leiktíð? Það vita það vonandi allir að það þarf að laga vörnina. Maður gleðst alltaf yfir því að fá góða leikmenn en maður veltir því fyrir sér hvort það sé ekki betra að tækla vandamálið.“
Jason Daði hefur ekkert spilað með Grimsby í ensku D-deildinni frá því í byrjun nóvember en hann hefur verið að glíma við þrálát hnémeiðsli. Fyrr í mánuðinum hitti hann sérfræðing vegna meiðslanna og er búist við að hann snúi aftur á völlinn í næsta mánuði.
Kristinn sagði jafnframt að ef litið væri til baka og skoðaðir þeir leikmenn sem hefðu náð góðum árangri í enskum fótbolta sæist að þar hefðu yfirleitt verið á ferðinni sterkir og harðir leikmenn. Hann velti því fyrir sér hvort Jason væri einfaldlega ekki sú týpa af leikmanni sem hentaði á Englandi.
Athugasemdir