Fotbolti.net
16.02.26 - 06:55
Ívan Guðjón Baldursson

Lykilmaður í U18 skiptir í Fram (Staðfest)

Lykilmaður í U18 skiptir í Fram (Staðfest)
Canon

Mynd: Fram

Hertz
Fram er búið að tilkynna nýjan leikmann sem gerir tveggja ára samning við félagið út keppnistímabilið 2027.
Varnarjaxlinn Kristín Magdalena Barboza kemur til Fram úr röðum Breiðabliks þar sem hún vill fá spiltíma í efstu deild.

Kristín er fædd 2008 og var í mikilvægu hlutverki á láni hjá Haukum í Lengjudeildinni í fyrra þar sem hún tók þátt í 16 af 18 deildarleikjum.

Hún er gríðarlega mikið efni þar sem hún hefur verið lykilleikmaður í unglingalandsliðum Íslands. Hún er með 16 skráða landsleiki á vefsíðu KSÍ, þar af 6 fyrir U18 liðið.

„Við erum virkilega spennt að fá að fylgjast með Kristínu í bláu treyjunni á komandi tímabili," segir meðal annars í tilkynningu frá Fram.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.