Fotbolti.net
16.03.15 - 10:50
Magnús Már Einarsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Úrvalslið vikunnar í enska - Arsenal og Man Utd eiga tvo

Giroud var í stuði í fyrradag.

Giroud var í stuði í fyrradag.

Canon

Mynd: Getty Images

Manchester United á tvo leikmenn í úrvalsliði vikunnar í enska boltanum eftir 3-0 sigurinn á Tottenham í gær. Arsenal á einnig tvo menn í liðinu eftir þægilegan sigur á West Ham.

Crystal Palace og Aston Villa fá líka sína tvo fulltrúa eftir örugga sigra um helgina.
Hér er úrvalslið helgarinnar en það er að þessu sinni úr smiðju Garth Crooks hjá BBC.



Fraser Forster er í markinu en hann bjargaði stigi fyrir Southampton á Stamford Bridge með frábærri frammistöðu.

Joel Ward skoraði og var öflugur í vörn Crystal Palace í sigrinum á QPR. Chris Smalling spilaði einn af sínum betri leikjum á tímabilinu gegn Tottenham en hann hafði góðar gætur á Harry Kane. John Terry er síðan þriðji maðurinn í varnarlínunni en hann var öflugur gegn Southampton.

George Boyd tryggði Burnley sigur á Manchester City með frábæru skoti á meðan Yannick Bolasie lék á als oddi á kantinum hjá Crystal Palace gegn QPR.

Wayne Rooney skoraði og fagnaði að hætti boxara gegn Tottenham eftir fréttir helgarinnar. Aaron Ramsey átti síðan flottan leik á miðjunni hjá Arsenal gegn West Ham.

Gabriel Agbonlahor og Christian Benteke skoruðu báðir tvívegis fyrir Aston Villa í 4-0 sigrinum á Sunderland og þeir eru að sjálfsögðu í liði helgarinnar. Olivier Giroud er með þeim frammi eftir að hafa skorað gegn West Ham og átt þátt í tveimur mörkum til viðbótar.

Fyrri úrvalslið í enska boltanum
Agbonlahor skoraði tvö.

Agbonlahor skoraði tvö.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.