City, Liverpool, Arsenal, RB Leipzig, Dortmund og Barcelona fylgjast með Hall - Man City gæti fengið Porro frá Spurs á afsláttarverði
   mán 16. mars 2026 14:05
Elvar Geir Magnússon
Ætla ekki að skipta um skoðun varðandi Casemiro
Miðjumaðurinn Casemiro.
Miðjumaðurinn Casemiro.
Mynd: EPA
Manchester United hefur engar áætlanir um að víkja frá þeirri ákvörðun að leiðir félagsins og miðjumannsins reynslumikla Casemiro skilja eftir tímabilið.

Þessi 34 ára Brassi tilkynnti í janúar að hann myndi yfirgefa félagið þegar samningur hans, upp á 350 þúsund pund á viku, rennur út.

Þrátt fyrir öfluga frammistöðu hans á tímabilinu ákvað United að félagið myndi ekki bjóða honum nýjan samning og hann mun því yfirgefa það á frjálsri sölu.

Sir Jim Ratcliffe hefur unnið að því að draga niður kostnað og það er talið hafa verið bak við þá ákvörðun að nýta ekki ákvæði um að framlengja við Casemiro. United vildi taka ákvörðun snemma ti lað geta unnið að því að endurnýja leikmannahópinn.

Casemiro bað um að fréttirnar yrðu gerðar opinberar til að forðast vangaveltur og misskilning. Síðan hefur hann farið á kostum og er kominn með sjö mörk á tímabilinu; sex af þeim hafa verið skallamörk.

Hann skoraði fyrsta mark leiksins í sigrinum gegn Aston Villa á sunnudaginn og fagnaði fyrir framan Stretford End stúkuna, þar sem heitustu stuðningsmenn United halda sig, og benti í sífellu á merkið á treyjunni.

Stuðningsmenn sungu „Eitt ár í viðbót, Casemiro“ eftir leikinn. Bruno Fernanders fyrirliði talaði um það í viðtali að hann vonaðist eftir því að Casemiro yrði áfram.

BBC segir þó engar áætlanir hjá Manchester United um að endurskoða ákvörðunina og Michael Carrick hefur líka sagt að það verði ekki skipt um skoðun.

„Þegar það er búið að ákveða eitthvað þá gerir það allt aðeins auðveldara og allir skilja stöðuna. Hann hefur haft frábær áhrif," segir Carrick.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 31 21 7 3 61 22 +39 70
2 Man City 30 18 7 5 60 28 +32 61
3 Man Utd 30 15 9 6 54 41 +13 54
4 Aston Villa 30 15 6 9 40 37 +3 51
5 Liverpool 30 14 7 9 49 40 +9 49
6 Chelsea 30 13 9 8 53 35 +18 48
7 Brentford 29 13 5 11 44 40 +4 44
8 Everton 30 12 7 11 34 35 -1 43
9 Newcastle 30 12 6 12 43 43 0 42
10 Bournemouth 30 9 14 7 44 46 -2 41
11 Fulham 30 12 5 13 40 43 -3 41
12 Brighton 30 10 10 10 39 36 +3 40
13 Sunderland 30 10 10 10 30 35 -5 40
14 Crystal Palace 30 10 9 11 33 35 -2 39
15 Leeds 30 7 11 12 37 48 -11 32
16 Tottenham 30 7 9 14 40 47 -7 30
17 Nott. Forest 30 7 8 15 28 43 -15 29
18 West Ham 30 7 8 15 36 55 -19 29
19 Burnley 30 4 8 18 32 58 -26 20
20 Wolves 30 3 7 20 22 52 -30 16
Athugasemdir
banner
banner