Ashley Cole, fyrrum leikmaður Arsenal, Chelsea og enska landsliðsins, er tekinn við ítalska B-deildarliðinu Cesena, en þetta verður hans fyrsta starf sem aðalþjálfari.
Cole, sem er af mörgum talinn einn besti vinstri bakvörður allra tíma, lagði skóna á hilluna árið 2019 eftir farsælan feril.
Síðustu ár hefur hann verið á fullu í þjálfun. Hann aðstoðaði Frank Lampard hjá Derby og Everton ásamt því að hafa aðstoðað Wayne Rooney hjá Birmingham City.
Hann var þá aðstoðarmaður Lee Carsley hjá U21 árs landsliði Englendinga og um stuttan tíma aðstoðarþjálfari enska landsliðsins undir stjórn Lee Carsley.
Einnig hefur hann unnið sem spekingur í frítíma sínum en nú hefur hann landað fyrsta starfi sínu sem aðalþjálfari. Hann hefur verið ráðinn hjá ítalska B-deildarliðinu Cesena út þessa leiktíð.
Cesena er 86 ára gamalt félag en það var sett í gjaldþrot árið 2018 og náðu nýju eigendurnir að kaupa ímyndarrétt gamla félagsins síðar.
Íslenski landsliðsmaðurinn Hörður Björgvin Magnússon lék tvö tímabil með liðinu á láni frá Juventus frá 2014 til 2016, en fyrra tímabilið lék liðið í Seríu A en féll niður um deild vorið 2015.
Í dag er liðið í 8. sæti B-deildarinnar með 40 stig þegar átta umferðir eru eftir.
?? ???????????? ????????????????????????????
— Cesena FC (@calciocesenafc) March 15, 2026
???? Welcome Mister #Cole
?? https://t.co/X7P530No66 pic.twitter.com/xXy9uElqwo
Athugasemdir



