Grótta hefur fengið enska framherjann Alexandria Madden til liðs við félagsins frá litháenska félaginu Zalgiris.
Madden er 26 ára gömul og uppalin hjá Leicester City í heimalandinu.
Þar spilaði hún með unglingaliðunum og alla leið upp í meistaraflokk áður en hún fór á fótboltastyrk í háskólann í Bandaríkjunum. Síðustu ár hefur hún spilaði í Litháen með stuttu stoppi í neðri deildunum á Englandi, en er nú gengin í raðir Gróttu.
„Það er sannkallaður heiður að ganga til liðs við Gróttu. Mér hefur liðið vel fyrstu vikurnar og gengið vel að aðlagast bæði innan og utan vallar. Ég er þakklát fólkinu í Gróttu fyrir að hafa trú á mér og treysta mér til að hjálpa liðinu að ná markmiðum sínum í sumar. Takk!” sagði Alex við undirskrift, en hún kom til landsins fyrir tæpum mánuði.
Dom Ankers, þjálfari Gróttu, er spenntur fyrir því að vinna með Alex.
„Við er mjög spennt að fá Alex inn í hópinn. Hún getur bæði lagt upp mörk og skorað en hún var nýverið þriðja markahæst í litháensku deildinni. Við erum viss um að hún verði mikilvægur hlekkur í sóknarleiknum okkar í sumar og frábær liðsmaður fyrir Gróttu,“ sagði hann um Alex.
Athugasemdir




