City, Liverpool, Arsenal, RB Leipzig, Dortmund og Barcelona fylgjast með Hall - Man City gæti fengið Porro frá Spurs á afsláttarverði
   mán 16. mars 2026 13:28
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Vangaveltur
Mögulegur landsliðshópur Arnars - 16 geirnegldir
Arnar er eflaust búinn að velja hópinn, en hann verður opinberaður á miðvikudag.
Arnar er eflaust búinn að velja hópinn, en hann verður opinberaður á miðvikudag.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Arnór er kominn af stað hjá Malmö og við spáum því að hann snúi aftur í landsliðið.
Arnór er kominn af stað hjá Malmö og við spáum því að hann snúi aftur í landsliðið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Rúnar Alex gerir aftur sterkt tilkall.
Rúnar Alex gerir aftur sterkt tilkall.
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Verða Gylfi og Aron, eða annar hvor þeirra?
Verða Gylfi og Aron, eða annar hvor þeirra?
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kominn tími á Tómas Bent?
Kominn tími á Tómas Bent?
Mynd: Hearts/Skjáskot
Á miðvikudag mun Arnar Gunnlaugsson opinbera landsliðshóp fyrir vináttuleiki gegn Kanada og Haítí í lok mánaðar. Leikirnir verða spilaðir í Kanada en andstæðingar Íslands eru að undirbúa sig fyrir HM.

Arnar mun sitja fyrir svörum á fréttamannafundi og verður eflaust spurður út í valið á hópnum.

Arnar hefur verið að velja 24 menn í hópanna og Fótbolti.net setti upp mögulegan landsliðshóp. Allt er þetta að sjálfsögðu til gamans gert, sjálfur hópurinn verður tilkynntur á miðvikudag.

Það er mat fréttaritara að 16 menn séu öruggir með sæti í hópnum; tveir markverðir, fjórir varnarmenn, átta miðjumenn/kantmenn og tveir framherjar. Skáletraðir verða í hópnum en eru ekki geirnegldir og innan sviga eru svo aðrir kostir sem Arnar gæti leitað til.

Markverðir
Elías Rafn Ólasson - Midtjylland
Hákon Rafn Valdimarsson - Brentford
Anton Ari Einarsson - Breiðablik

(Rúnar Alex Rúnarsson og Lúkas J. Blöndal Petersson)

Rúnar Alex hefur spilað síðustu tvo leiki fyrir dönsku meistarana og hlýtur hann að vera ansi nálægt hópnum. Anton Ari hefur verið númer þrjú og hefur Arnar verið ánægður með hann í því hlutverki.

Varnarmenn
Sverrir Ingi Ingason - Panathinaikos
Daniel Leó Grétarsson - SönderjyskE
Hörður Björgvin Magnússon - Levadiakos
Logi Tómasson - Samsunspor
Alfons Sampsted - GA Eagles
Guðlaugur Victor Pálsson - Horsens

(Hjörtur Hermannsson, Aron Einar Gunnarsson, Davíð Kristján Ólafsson, Kolbeinn Birgir Finnsson, Brynjar Ingi Bjarnason, Dagur Dan Þórhallsson, Daníel Freyr Kristjánsson, Nóel Atli Arnórsson)

Það spilar aðeins inn í varnarmannavalið hvar Arnar Gunnlaugsson sér Mikael Egil fyrir sér, en hann hefur verið að spila í vængbakverðinum hjá Genoa. Arnar hefur áður verið með fáa varnarmenn í hópnum.

Verður Aron Einar í hópnum eða fær Hjörtur traustið? Arnar svarar því á miðvikudag. Guðlaugur Victor er svo ekki að yngjast og er að spila í dönsku B-deildinni.

Miðjumenn og kantmenn
Hákon Arnar Haraldsson - Lille
Ísak Bergmann Jóhannesson - Köln
Kristian Nökkvi Hlynsson - Twente
Mikael Egill Ellertsson- Genoa
Stefán Teitur Þórðarson - Hannover
Andri Fannar Baldursson - Kasimpasa
Mikael Neville Anderson - Djurgården
Jón Dagur Þorsteinsson - Brann
Arnór Sigurðsson - Malmö
Tómas Bent Magnússon - Hearts
Gísli Gottskálk Þórðarson - Lech Poznan
Kolbeinn Þórðarson - Gautaborg

(Jóhann Berg Guðmundsson, Gylfi Þór Sigurðsson, Tómas Óli Kristjánsson, Willum Þór Willumsson, Þórir Jóhann Helgason, Ari Sigurpálsson)

Mjög margir miðjumenn sem koma til greina og margir valdir. Þórir Jóhann væri eflaust ef hann hefði spilað eitthvað frá 6. janúar. Samningur hans við Lecce rennur út í sumar og eru allar líkur á því að hann sigli á nýjar slóðir.

Tómas Bent er á toppi skosku úrvalsdeildarinnar og hefur átt frábært ár, við spáum því að hann fái kallið í þetta verkefni.

Reynsluboltarnir Jóhann Berg og Gylfi eru ekki valdir í þessum hóp; Jói er án félags og Gylfi er á undirbúningstímabili. Willum hefur verið í hópnum en hefur lítið spilað á þessu tímabili og verið ónotaður varamaður í fjórum leikjum af síðustu fimm hjá NEC.

Framherjar
Orri Steinn Óskarsson - Real Sociedad
Albert Guðmundsson - Fiorentina
Viktor Bjarki Daðason - FCK

(Stefán Ingi Sigurðarson, Daníel Tristan Guðjohnsen, Nökkvi Þeyr Þórisson, Brynjólfur Andersen Willumsson, Ísak Snær Þorvaldsson)

Viktor Bjarki hefur ekki spilað í síðustu tveimur leikjum FCK en skoraði þrjú mörk í Meistaradeildinni fyrr í vetur. Ef hann er heill þá er hann líklegur í hópinn.

Daníel Tristan og Brynjólfur hafa verið í hópnum og eru einnig mjög líklegir kostir ásamt Stefáni Inga sem hefur verið að skora fyrir GA Eagles.

Meiddir: Andri Lucas Guðjohnsen, Sævar Atli Magnússon, Valgeir Lunddal Friðriksson, Kristall Máni Ingason og Bjarki Steinn Bjarkason glíma við meiðsli.

Fréttamannafundur Arnars Gunnlaugssonar verður á miðvikudag og hefst klukkan 13:15.
Athugasemdir
banner