City, Liverpool, Arsenal, RB Leipzig, Dortmund og Barcelona fylgjast með Hall - Man City gæti fengið Porro frá Spurs á afsláttarverði
   mán 16. mars 2026 18:51
Brynjar Ingi Erluson
Norsk markavél í Aftureldingu (Staðfest)
Mynd: Afturelding
Afturelding hefur staðfest komu norska framherjans Joacim Holtan en hann semur út 2026.

Holtan er 27 ára gamall og var síðast á mála hjá Kongsvinger í B-deildinni í Noregi.

Hann er mikill markakóngur og var meðal annars markahæsti maður C-deildarinnar með Bryne árið 2020 og árið á undan skoraði hann 26 mörk með Mandalskameratene í D-deildinni, en það árið gerðu þeir Ingólfur Örn Kjartansson og Viktor Smári Segatta báðir 22 mörk í deildinni.

Norðmaðurinn hefur einnig spilað með Egersund, Haugesund og Start á ferlinum og gert 38 mörk í 108 leikjum í B-deildinni ásamt því að hafa spilað fjórtán leiki í úrvalsdeildinni.

Nú er hann kominn í Mosfellsbæinn en hann mun leika með Aftureldingu í Lengjudeildinni í sumar og á að hjálpa þeim að berjast um að komast aftur upp í Bestu deildina.

„Ég er gríðarlega ánægður og hlakka til að spila fyrir Aftureldingu. Ég átti góð símtöl við Magga þjálfara og hann sagði mér frá sókndjörfum leikstíl sem muni henta mér vel. Ég hlakka til að verða hluti af hópnum og skora mikið af mörkum,“ sagði Holtan við undirskrift.


Athugasemdir
banner