16.04.07 - 14:36
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Dichio fer frá Preston til Toronto (Staðfest)

Dichio er á leiðinni til Ameríku

Mynd: Getty Images

Dichio er á leiðinni til Ameríku

Mynd: Getty Images
Sóknarmaðurinn Danny Dichio hefur gengið til liðs við Toronto FC frá enska Coca Cola Championship félaginu Preston.
Þessi 32 ára gamli leikmaður, sem á bandaríska konu, hefur tafarlaust rift samningnum sínum við enska félagið til að fara til Toronto.
Búist var við því að Dichio myndi fara frá félaginu í sumar en hann varð að skrifa undir fyrir 15. apríl.
Toronto, sem eru þjálfuð af hinum skoska Mo Johnston, eru á sínu fyrsta tímabili í MLS-deildinni.
Dichio hefur aðeins tekist að skora sjö sinnum á næstum því tveimur árum með Preston í Championship deildinni. Hann kom til Preston eftir að hafa verið hjá Milwall, QPR, Sunderland, West Brom og Sampdoria.

Heimild: BBC