16.04.08 - 20:09
Hörður Snævar Jónsson
Viktor Unnar Illugason á láni frá Reading í Þrótt (Staðfest)

Viktor Unnar fagnar marki með Reading.

Mynd: Reading

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Viktor Unnar fagnar marki með Reading.

Mynd: Reading
Viktor Unnar Illugason leikmaður Reading hefur verið lánaður til Þróttar og mun hann leika með liðinu í sumar. Þetta staðfesti Viktor í samtali við Fótbolta.net nú rétt í þessu.
Fleiri lið höfðu áhuga á því að fá Viktor Unnar í sínar raðir en samkvæmt heimildum Fótbolta.net voru það Fram, Grindavík og Fjölnir úr Landsbankadeildinni sem höfðu áhuga á honum.
Hann getur leikið bæði sem framherji og vinstri kantmaður en þar hefur hann verið að leika með Reading undanfarið.
Viktor gekk í raðir Reading árið 2006 frá Breiðablik. Hann skoraði eitt mark í níu leikjum í Landsbankadeildinni sumarið 2006 en þá lék hann einnig einn leik í Visa-Bikarnum.
Hann er nú að klára sitt fyrsta heila tímabil hjá Reading en hann hefur verið fastamaður í u-18 ára liði félagsins og fengið að spreyta sig með varaliðinu.
Viktor hefur verið fastamaður í u-19 ára landsliði Íslands en hann á fimm landsleiki að baki með liðinu.
Þá hefur Viktor leikið þrettán leiki með u-17 ára landsliðinu.
Þróttur eru nýliðar í Landsbankadeild karla en liðið endaði í öðru sæti í 1 deildinni á síðustu leiktíð.
Liðið hefur verið að styrkja sig fyrir komandi átök í Landsbankadeildinni en liðið hefur fengið þá Sigmund Kristjánsson, Dennis Danry, Kristján Ómar Björnsson. Bjarka Freyr Guðmundsson , Carlos Alexandre Berna og Ismael Da Silva Fransisco.
Þá er liðið að skoða Michael Wilde sem er ensku framherji og hefur skorað 135 mörk í 190 leikjum fyrir The New Saint í Wales.