Arnar Freyr Ólafsson, markvörður KR, sleit sin í hné í viðureign KR og Keflavíkur í fyrstu umferð Bestu deildarinnar um helgina.
Hann fór af velli á tíundu mínútu og Halldór Snær Georgsson leysti hann af.
Fyrst um sinn var talið að tímabilinu hjá Arnari væri lokið strax í fyrstu umferð en Vísir fjallar um að nú þyki líklegt að það muni taka hann fjóra mánuði að koma sér aftur í leikform. Hann gæti því náð lokahluta tímabilsins.
Halldór var aðalmarkvörður KR í fyrra en Arnar hafði betur í samkeppninni í vetur og var búinn að vinna sér inn stöðu aðalmarkvarðar.
„Fyrst þegar að þetta gerist er þetta alveg erfitt. Maður verður tilfinningaríkur en þegar maður er farinn að hugsa meira út í þetta þá horfi ég bara á þetta þannig að ég get ekki breytt þessu. Ég reyni bara frekar að komast í gegnum þetta. Það er ekkert sem ég get gert til að snúa þessu við," segir Arnar í viðtali við íþróttadeild Sýnar.