16.05.06 - 19:40
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Libor Sionko til Rangers (Staðfest)

Sionko í leik með tékkneska landsliðinu

Mynd: Getty Images

Sionko í leik með tékkneska landsliðinu

Mynd: Getty Images
Rangers hafa fengið Tékkneska miðjumanninn Libor Sionko en hann kom á frjálsri sölu frá Austria Vienna. Sionko sem er 29 ára gamall gekkst undir læknisskoðun í dag og gerir þriggja ára samning við félagið.
,,Það eru forréttindi að ganga til liðs við Rangers og mér hlakkar til að byrja nýtt líf í Skotlandi. Ég fékk mörg boð frá mörgum toppliðum en um leið og ég heyrði að Rangers hefði áhuga var ég búinn að ákveða mig,” sagði Sionko.
Sionko eru fyrstu stóru kaup Paul Le Guen en hann tekur við af Alan McLeish sem stjóri Rangers nú í sumar. Sionko hefur spilað tvo landsleiki fyrir Tékkland og er núna á biðlista hjá liðinu fyrir Heimsmeistaramótið í sumar.