Arsenal hefur áhuga á Fernandes - Man Utd fylgist með Hjulmand - Valverde vill vera áfram hjá Real Madrid en City fylgist með
   lau 16. maí 2026 09:30
Ívan Guðjón Baldursson
Gæti farið þrátt fyrir nýtt samningstilboð frá Brighton
Mynd: Facebook
Mynd: Arsenal
Kantmaðurinn Amario Cozier-Duberry er að gera flotta hluti á láni hjá Bolton í League One deildinni á Englandi.

Hann hefur hjálpað Bolton að tryggja sér þátttöku í úrslitaleik umspilsins um sæti í Championship deildinni á næsta ári. Þar spilar Bolton við Benoný Breka Andrésson og félaga í liði Stockport.

Cozier-Duberry er samningsbundinn Brighton til 2028 og er með nýtt samningstilboð á borðinu, en er að líta í kringum sig vegna áhuga utan landsteinanna.

Fabrizio Romano greinir frá áhuga úr efstu deildum í Þýskalandi og Frakklandi og gæti kantmaðurinn kosið að skipta um félag í leit sinni að spiltíma í efstu deild.

Tvítugur Cozier-Duberry er kominn með 10 mörk og 12 stoðsendingar í 40 leikjum á tímabilinu. Hann er þar að auki landsliðsmaður í U20 liði Englands og á í heildina 22 leiki að baki fyrir yngri landsliðin.

Cozier-Duberry er uppalinn hjá Arsenal og var mikilvægur hlekkur í unglingaliðum stórveldisins áður en hann skipti til Brighton.


Slapp
banner