Fotbolti.net
16.06.08 - 17:09
Magnús Már Einarsson

Fabrice Muamba til Bolton (Staðfest)

Fabrice Muamba til Bolton (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Bolton Wanderers hefur fengið miðjumanninn Fabrice Muamba frá Birmingham en hann hefur gert fjögurra ára samning við félagið.
Talið er að kaupverðið hljóði upp á fimm milljónir punda en þessi enski U21 árs landsliðsmaður lék vel með Birmingham á síðustu leíktíð þó það hafi ekki dugað til að bjarga liðinu frá falli.

Muamba, sem varð tvítugur fyrr í mánuðinum, hóf ferilinn hjá Arsenal en fór síðan til Birmingham árið 2006.

,,Fabrice er miðjumaður sem er harður af sér og hefur góðan grunn frá því í unglingaliði Aresnal,\" sagði Megson við heimasíðu Bolton.

,,Hann hefur leikið í ensku úrvalsdeildinni með Birmingham City og hann mun reynast Bolton gríðarlega mikilvægur á næstu árum,\" sagði Megson einnig.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.