Byrjunarlið FH og Leiknis: Atli í markinu hjá FH

Atli Gunnar ver mark FH í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Mikkel Dahl byrjar hjá Leikni.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Atli Gunnar ver mark FH í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.
FH og Leiknir mætast í 9. umferð Bestu-deildar karla klukkan 19:15 í kvöld en leikið er í Kaplakrika.
Nú rétt í þessu tilkynntu þjálfarar liðanna byrjunarliðin sín og þau má sjá hér að neðan. FH spilaði síðast gegn KR 29. maí og tapaði 2 - 3 en á sama tíma tapaði Leiknir heima gegn Breiðabliki 1 - 2.
Ólafur Jóhannesson þjálfari FH gerir fjórar breytingar á sínu liði síðan þá. Atli Gunnar Guðmundsson kemur í markið í stað Gunnars Nielsen sem var að spila landsleik með Færeyjum í vikunni og er ekki í leikmannahópnum. Ólafur Guðmundsson snýr aftur eftir að hafa verið lengi frá vegna meiðsla og þeir Máni Austmann Hilmarson og Logi Hrafn Róbertsson koma líka inn.
Steven Lennon sest á bekkinn eins og Ástbjörn Þórðarson en Haraldur Einar Ásgrímsson er utan hóps.
Sigurður Heiðar Höskuldsson þjálfari Leiknis gerir líka eina breytingu á sínu liði. Mikkel Dahl kemur inn fyrir Brynjar Hlöðversson.
Byrjunarlið FH
- 32. Atli Gunnar Guðmundsson (m)
- 4. Ólafur Guðmundsson (f)
- 6. Eggert Gunnþór Jónsson
- 8. Kristinn Freyr Sigurðsson
- 8. Finnur Orri Margeirsson
- 9. Matthías Vilhjálmsson (f)
- 16. Guðmundur Kristjánsson
- 17. Baldur Logi Guðlaugsson
- 19. Lasse Petry Andersen
- 23. Máni Austmann Hilmarsson
- 34. Logi Hrafn Róbertsson
Byrjunarlið Leiknir R.
- 1. Viktor Freyr Sigurðsson (m)
- 4. Bjarki Aðalsteinsson (f)
- 5. Daði Bærings Halldórsson (f)
- 6. Árni Elvar Árnason (f)
- 9. Róbert Hauksson
- 9. Mikkel Dahl
- 15. Birgir Baldvinsson
- 17. Gyrðir Hrafn Guðbrandsson
- 18. Henrik Emil Hahne Berger
- 23. Dagur Austmann Hilmarsson
- 80. Mikkel Elbæk Jakobsen

Mikkel Dahl byrjar hjá Leikni.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
