Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 16. júní 2022 20:11
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
William Cole Campbell í fyrsta sinn í hóp hjá Breiðabliki
William Cole Campbell.
William Cole Campbell.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
William Cole Campbell er í fyrsta sinn mættur í leikmannahóp hjá Breiðabliki í Bestu deildinni. Blikar eiga útileik gegn Valsmönnum í kvöld og er William Cole á meðal varamanna.

Lestu um leikinn: Valur 3 -  2 Breiðablik

Hinn sextán ára William Cole yfirgaf FH í síðasta mánuði og hélt yfir í Kópavoginn.

„Hann er farinn frá FH og vantaði stað til þess að æfa á þangað til hann fer út í júlí. Við gáfum honum leyfi til þess," sagði Sigurður Hlíðar Rúnarsson, deildarstjóri knattspyrnudeildar Breiðabliks.

Hann er á leið erlendis til Borussia Dortmund í Þýskalandi síðar í sumar.

William Cole er sóknarsinnaður miðjumaður sem á að baki fimm unglingalandsleiki fyrir Ísland, en hann á einnig ættir að rekja til Bandaríkjanna.
Athugasemdir
banner
banner
banner