Real Madrid vill Konate - Arsenal ætlar að fá sóknarmann - Höjlund á óskalista Inter
   mán 16. júní 2025 16:30
Mate Dalmay
Jói Kalli langlíklegastur til að taka við ÍA
Jóhannes Karl er fyrrum þjálfari ÍA.
Jóhannes Karl er fyrrum þjálfari ÍA.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍA er í þjálfaraleit eftir að Jón Þór Hauksson var látinn taka pokann sinn í dag. Gengi Skagamanna á tímabilinu hefur ekki verið gott og er liðið sem stendur á botni Bestu deildarinnar eftir 4-1 tap gegn Aftureldingu í gær.

Það hafa nokkrir þjálfarar verið orðaðir við starfið en Jóhannes Karl Guðjónsson er núna talinn langlíklegastur til að taka við því.

Samkvæmt Epic virðist svo gott sem frágengið að Jóhannes Karl verði næsti þjálfari skagamanna, en markaðurinn opnaði fyrr í dag á 1.90 en hefur lækkað hratt og stendur nú í 1.40.

Næst líklegustu menn eru Gunnar Heiðar Þorvaldsson, þjálfari Njarðvíkur, á stuðlinum 8.00 og Arnar Grétarsson á 10.00 stuðli.

Jóhannes Karl er fyrrum leikmaður og þjálfari ÍA en hann stýrði liðinu frá 2018 til 2021. Hann kom liðinu upp í Bestu deildina og hélt því þar í þrjú tímabil í röð. Jói Kalli er í dag þjálfari AB sem er í C-deild í Danmörku.
Athugasemdir
banner
banner