Fotbolti.net
16.06.25 - 14:20
Elvar Geir Magnússon

Truffert til Bournemouth (Staðfest) - Kerkez færist nær Liverpool

Adrien Truffert.

Adrien Truffert.

Canon

Mynd: Bournemouth

Bournemouth hefur gengið frá kaupum á franska varnarmanninum Adrien Truffert frá Rennes fyrir 14,4 milljónir punda.
Truffert, sem er 23 ára gamall vinstri bakvörður, skrifaði undir fimm ára samning við félagið. Kaupverðið skiptist í 11,4 milljónir punda og mögulega viðbót upp á 3 milljónir punda, auk þess sem Rennes hefur samið um 10% af framtíðarsölu.

Truffert, sem lék sinn fyrsta leik fyrir Rennes árið 2020 og varð síðar fyrirliði liðsins, hefur spilað 212 leiki fyrir félagið. Hann lék einnig með yngri landsliðum Frakklands áður en hann fékk sinn fyrsta A-landsleikárið 2022. Einnig var hann í franska landsliðinu sem tryggði sér silfurverðlaun á Ólympíuleikunum í París árið 2024.

„Þetta er frábært tækifæri fyrir mig til að taka næstu skref á ferlinum og verða hluti af metnaðarfullu verkefni,“ sagði Truffert. „Ég fann fyrir trausti félagsins frá fyrstu samtölum okkar og er spenntur fyrir því að hefjast handa."

Tiago Pinto, yfirmaður knattspyrnumála hjá Bournemouth, hrósaði Truffert og sagði: „Adrien er leikmaður sem við höfum haft augastað á í einhvern tíma, og hann bætir mikilli reynslu í hópinn, þrátt fyrir að vera enn ungur. Við erum spennt að vinna með honum og ánægð með að fá leikmann af svona miklum gæðum til okkar."

Á sama tíma eru viðræður í gangi milli Bournemouth og Liverpool um mögulega sölu á varnarmanninum Milos Kerkez. Kaup Bournemouth á Truffert gerir leið Kerkez til Liverpool greiðari.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal000
2Aston Villa000
3Bournemouth000
4Brentford000
5Brighton000
6Chelsea000
7Coventry000
8Crystal Palace000
9Everton000
10Fulham000
11Hull City000
12Ipswich Town000
13Leeds000
14Liverpool000
15Manchester City000
16Manchester Utd000
17Newcastle000
18Nott. Forest000
18West Ham38-1939
19Burnley38-3722
19Sunderland000
20Wolves38-4120
20Tottenham000
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.