Fotbolti.net
16.06.26 - 14:08
Kári Snorrason

Epískar viðureignir KR og Víkings

Frá leik liðanna 2021.

Frá leik liðanna 2021.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stórleikur KR og Víkings fer fram á Víkingsvelli í kvöld. Jóhann Ingi Jónsson flautar til leiks klukkan 19:15 og er víst að það ríki mikil spenna fyrir viðureigninni.

Víkingur er með þriggja stiga forystu á KR á toppi deildarinnar sem getur með sigri jafnað Íslandsmeistarana.

Leikir liðanna í gegnum tíðina hafa verið vægast sagt áhugaverðar. Undirritaður hefur tekið saman þrjár eftirminnilegustu viðureignir liðanna á síðustu árum.
Tvær gjörólíkar leiðir á toppinn
TENGT EFNI

Tvær gjörólíkar leiðir á toppinn

KR 0-7 Víkingur R.
0-1 Óskar Borgþórsson ('5)
0-2 Valdimar Þór Ingimundarson ('24)
0-3 Valdimar Þór Ingimundarson ('40)
0-4 Nikolaj Hansen ('45)
0-5 Daníel Hafsteinsson ('49)
0-6 Valdimar Þór Ingimundarson ('67)
0-7 Oliver Ekroth ('87)



Síðasti deildarleikur liðanna var sannkölluð martröð fyrir KR-inga en Víkingar í sjöunda himni. Leikar enduðu 0-7 og var það jöfnun á stærsta deildartapi KR í sögunni. Hitt mettapið kom eftirminnilega gegn FH í lokaumferðinni árið 2003, þegar KR-ingar höfðu þegar tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn.

Valdimar Þór Ingimundarson fór á kostum og skoraði þrjú. Fallfnykurinn hafði aldrei verið meiri í Vesturbæ en akkúrat þarna. Líkt og flestum er kunnugt þá björguðu KR-ingar sér frá falli með sannfærandi sigri gegn Vestra í lokaumferðinni.

Óskar Hrafn Þorvaldsson mætti í eftirminnilegt viðtal eftir leik þar sem hann sagði þá góðu línu; „Egó þjálfarans getur ekki verið að þvælast fyrir liðinu“. Eflaust íhugaði hann að endurreisa skipin sem höfðu verið brennd í upphafi tímabils.

Óskar Hrafn hugar að breytingum: Egó þjálfarans getur ekki verið að þvælast fyrir árangri liðsins
TENGT EFNI

Óskar Hrafn hugar að breytingum: Egó þjálfarans getur ekki verið að þvælast fyrir árangri liðsins



KR 2-0 Víkingur R.
Rautt spjald, Kári Árnason ('25)
1-0 Kristján Flóki Finnbogason ('61)
Rautt spjald, Sölvi Geir Ottesen ('78)
Rautt spjald, Halldór Smári Sigurðsson ('85)
2-0 Pablo Punyed ('88)



Víkingum var heitt í hamsi er þeir heimsóttu Meistaravelli í miðjum heimsfaraldri. Allir þrír hafsentar liðsins, Kári Árnason, Sölvi Geir Ottesen og Halldór Smári Sigurðsson, voru reknir af velli og enduðu því átta Víkingar inni á vellinum.

Spjöldin á Kára og Sölva voru afar umdeild. Það sem er eftirminnilegast er brottvísun Sölva. Helgi Mikael, dómari leiksins, mat það sem svo að hann hafi slegið í Stefán Árna Geirsson en Pablo nokkur Punyed ýtti Sölva á Stefán og úr varð að rauða spjaldið fór á loft.

Auðvitað spilaði kryddaði rauða spjaldið komu Pablo Punyed í Víkina enn frekar eftir tímabilið. Þegar félagaskiptin í Víking voru að ganga í gegn hringdi hann í Sölva og bað hann afsökunar.

KR 1-2 Víkingur
1-0 Kjartan Henry Finnbogason ('9)
1-1 Atli Barkarson ('16)
1-2 Helgi Guðjónsson ('87)
Rautt spjald, Kjartan Henry Finnbogason ('90)
Misnotað víti, Pálmi Rafn Pálmason ('90)
Rautt spjald, Þórður Ingason ('90)
Rautt spjald, Hajrudin Cardaklija ('90)



Víkingar fóru langt með að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn eftir að liðið vann hádramatískan sigur á KR á Meistaravöllum 2021. Víkingar komust þá upp fyrir Breiðablik sem höfðu verið í bílstjórasætinu í nokkurn tíma en þeir töpuðu gegn FH á sama tíma.

KR-ingar komust yfir snemma leiks en Víkingar komu til baka og skoraði Helgi Guðjónsson sigurmarkið á 87. mínútu. Það var þó ekki Helgi sem stal fyrirsögnunum eftir leik heldur var það Ingvar Jónsson. Markvörðurinn varði vítaspyrnu Pálma Rafns Pálmasonar í uppbótartíma og Víkingar með níu fingur á titlinum.

Í lokaumferðinni vann Víkingur 2-0 sigur á Leikni á Víkingsvelli og fyrsti Íslandsmeistaratitill liðsins í 30 ár kom í höfn.
Í sjöunda himni.

Í sjöunda himni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Síðasti deildarleikur liðanna endaði með 7-0 tapi KR.

Síðasti deildarleikur liðanna endaði með 7-0 tapi KR.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kári Árnason og Pablo Punyed í baráttunni.

Kári Árnason og Pablo Punyed í baráttunni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Pálmi Rafn rífur í Nikolaj Hansen.

Pálmi Rafn rífur í Nikolaj Hansen.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óttar Magnús tekur aukaspyrnu.

Óttar Magnús tekur aukaspyrnu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mættur í Víking.

Mættur í Víking.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hiti í hálfleik.

Hiti í hálfleik.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Leikurinn hefst 19:15 í kvöld.

Leikurinn hefst 19:15 í kvöld.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.