Fotbolti.net
28.07.26 - 00:25
Elvar Geir Magnússon

Sterkastur í 16. umferð - Staðið fyrir sínu sem algjör lykilhlekkur

Arnór Ingvi er leikmaður umferðarinnar.

Arnór Ingvi er leikmaður umferðarinnar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sextánda umferð Bestu deildarinnar er að baki. Umferðin hófst fyrir ansi mörgum vikum síðan, KR vann Val 3-1 þann 26. maí í leik sem var færður vegna Evrópuþátttöku Vals.

Sterkasti leikmaður umferðarinnar, í boði Steypustöðvarinnar, kemur einmitt úr þeim leik. Það er Arnór Ingvi Traustason sem hefur verið frábær fyrir KR og staðið fyrir sínu sem algjör lykilhlekkur.

„Mjög sáttur, við erum búnir að vinna þá þrisvar núna. Þetta var vel útfærður leikur hjá okkur og gott að koma til baka frá síðasta leik,“ sagði Arnór Ingvi eftir leikinn en það viðtal má sjá í heild hér:
Arnór Ingvi: Allt á uppleið í KR og í Vesturbænum
TENGT EFNI

Arnór Ingvi: Allt á uppleið í KR og í Vesturbænum

Eftir aðeins tíu mínútna leik hafði Arnór bæði skorað og lagt upp. Hann segist njóta sín í KR.

„Það er ótrúlega gaman að vera í KR og hvernig við erum að spila. Hópurinn er mjög góður og við náum vel saman. Það er góður andi og allt á uppleið í KR og í Vesturbænum. Maður finnur það, þar sem maður er fluttur hingað. Ótrúlega þægilegt að vera í Vesturbænum og hvað þá í KR," sagði Arnór.

Hér má sjá það helsta úr leiknum sem fram fór 26. maí.

Sterkustu leikmenn:
15. umferð - Eiður Orri Ragnarsson (Keflavík)
14. umferð - Aron Sigurðarson (KR)
13. umferð - Aron Elís Þrándarson (Víkingur)
12. umferð - Helgi Guðjónsson (Víkingur)
11. umferð - Elías Már Ómarsson (Víkingur)
10. umferð - Freyr Sigurðsson (Fram)
9. umferð - Bjarki Björn Gunnarsson (ÍBV)
8. umferð - Anton Logi Lúðvíksson (Breiðablik)
7. umferð - Lúkas Logi Heimisson (Valur)
6. umferð - Óskar Borgþórsson (Víkingur)
5. umferð - Stefán Árni Geirsson (KR)
4. umferð - Tryggvi Hrafn Haraldsson (Valur)
3. umferð - Elías Már Ómarsson (Víkingur)
2. umferð - Vuk Oskar Dimitrijevic (Fram)
1. umferð - Emil Atlason (Stjarnan)

Innkastið - Stefnir í trylltan dans í neðri hlutanum

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.16+4243
2KR16+2235
3Fram16+1334
4Breiðablik16+929
5Valur16-619
6Keflavík16-819
7ÍA16-818
8ÍBV16-816
9Stjarnan16-1215
10KA15-814
11FH16-1113
12Þór15-2511
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.