Fotbolti.net
16.06.26 - 10:29
Kári Snorrason

Real Madrid í baráttuna um Fernandes - Rashford ákvæðið að renna út

Fernandes er eftirsóttur.

Fernandes er eftirsóttur.

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Real Madrid stimplar sig inn í baráttuna um Mateus Fernandes, Bayern Munchen á eftir markaskorara Marokkó á HM og Barcelona ætlar ekki að festa kaup á Marcus Rashford. Þetta og margt fleira í slúðurpakka dagsins sem er í boði Powerade.
Real Madrid hefur hlerað West Ham vegna mögulegra kaupa á Mateus Fernandes (21) en Manchester United er enn í bílstjórasætinu í kapphlaupinu um Portúgalann. (Teamtalk)

United er þó ekki reiðubúið að mæta uppsettu verði West Ham á Fernandes, sem er um 80 milljónir punda, en hann er einnig sagður á blaði hjá PSG. (Mirror)

Bayern Munchen undirbýr 45 milljóna punda tilboð í marokkóska framherjann Ismael Saibari (25) frá PSV. Saibari skoraði í 1-1 jafntefli gegn Brasilíu á laugardag. (Talksport)

Real Madrid hefur spurst fyrir um stöðu Felix Nmecha (25), leikmann Borussia Dortmund. Manchester City og grannar þeirra í United eru einnig á höttunum eftir Þjóðverjanum en hann fór í gegnum akademíu City. (Sky Sport Germany)

Newcastle ætlar að fara af fullum þunga í viðræðum við spænska kantmanninn Victor Munoz (22) frá Osasuna. (Mail)

Ákvæði Barcelona um að kaupa Marcus Rashford fyrir 35 milljónir punda er að renna út en félagið virðist ekki ætla að festa varanleg kaup á 28 ára enska landsliðsmanninum. (ESPN)

Leeds United undirbýr tilboð í Ousmane Diomande (22), hafsent Sporting. Ganga skiptin í gegn gæti velski varnarmaðurinn, Joe Rodon (28), farið frá félaginu. (Football Insider)

Ipswich og Hull City hafa áhuga á markverðinum Nick Pope (34), en Newcastle eru tilbúnir að selja hann fyrir 5 milljónir punda. (Teamtalk)

West Ham eru meðal nokkurra enskra félaga sem fylgjast vel með frammistöðu Nestory Irankunda (20), kantmanni Watford, með Ástralíu á HM. (Football Insider)
kvæði Barcelona um að kaupa Marcus Rashford fyrir 35 milljónir punda er að renna út.

kvæði Barcelona um að kaupa Marcus Rashford fyrir 35 milljónir punda er að renna út.

Canon

Mynd: EPA

Falur fyrir fimm milljónir punda.

Falur fyrir fimm milljónir punda.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.