Skrifaði nafn sitt í sögubækurnar áður en Íranir jöfnuðu í annað sinn

Elijah Just er kominn með tvö

Mynd: Nýja Sjáland/X

Elijah Just er kominn með tvö

Mynd: Nýja Sjáland/X
Elijah Just skrifaði nafn sitt í sögubækurnar í Nýja-Sjálandi er hann gerði annað mark sitt gegn Íran í riðlakeppni heimsmeistaramótsins í nótt.
Just skoraði fyrra markið eftir stórkostlegt samspil á 7. mínútu og var seinna mark hans ekki síðra.
Í raun var seinna markið guðdómlegt tiki-taka spil sem Just átti sjálfur risastóran þátt í. Hann fékk boltann, kom honum inn á Wood sem 'tíaði' hann upp fyrir Just sem lyfti boltanum skemmtilega yfir markvörð Írana og í netið.
Sjáðu seinna mark Just hér
Þetta er í fyrsta sinn sem Nýsjálendingur skorar í einum og sama leiknum á HM. Sá er að skrifa sig í sögubækurnar og er nú markahæstur ásamt Folarin Balogun, Kai Havertz og Yasin Ayari.
Íran svaraði um hæl. Ramin Rezaeian, sem skoraði fyrra mark Írans, kom með stórkostlega fyrirgjöf inn á teiginn á Mohammed Mohebi sem setti boltann í netið. Fallegt jöfnunarmark.
Sjáðu jöfnunarmark Írana

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!